Núna er Kallinn kominn í fæðingarorlof. Það er magnað. Reyndar bara fyrir hádegi en þetta er bara fínt. Við feðgar erum ekkert að kljúfa atómin hérna saman yfir morgunmatnum en þetta eru fróðlegar samræður sem eiga sér stað þó við skiljum takmarkað hvorn annan. Óliver Gísli er núna orðinn 10 mánaða og braggast bara vel. Það eru dýrmætar stundir framundan hjá okkur feðgum.
Kveðja,
Þorri og Óliver Gísli
1 Comments:
Kem í morgunkaffi bráðlega og tek þátt í samræðunum. Klýf ekki atomin og allra síst á morgnana. Reyndar ekki á kvöldin heldur. Kveðja, amma grey
Skrifa ummæli
<< Home