miðvikudagur, febrúar 10, 2010

Allt við sama heygarðshornið


Kolbrún Þöll og stöllur hennar í 5. fl. Stjörnunar unnu gullverðlaun á Unglingamóti FSÍ um nýliðna helgi og eru Íslandsmeistarar 2010. Æfingar á dýnu og trabólíni má sjá hér.

Af Óliver Gísla er það annars að frétta að hann er hættur að skíta í brækurnar sínar og hefur tekið upp á almennum salernisferðum við mikinn fögnuð viðstaddra. Þorkatla Eik lætur sér þó fátt um finnast og hefur hægðir eins og engin sé morgundagurinn.
Annars allt gott.

Kveðja,
Þorri.

Efnisorð:

þriðjudagur, nóvember 17, 2009

Haustmót 2009


Um nýliðna helgi gerði Kolbrún Þöll og stelpurnar í 5. flokki Stjörnunar sér lítið fyrir og unnu Haustmót Fimleikasambandsins í hópfimleikum sem haldið var á Akranesi. 15 lið víðs vegar af landinu öttu þar kappi spennan var í hámarki er kom að verðlaunaafhendingu. Þessar stúlkur hafa látið mikið af sér kveða á síðustu misserum og eru afar vel samtilltar. Auk þessa fékk 4. fl. silfur, 3. fl. brons, 2. fl. gull og 1. fl. fékk brons. Framtíðin er því björt hjá Stjörnunni.

Æfingar 5. fl. á dýnu má sjá hér.

Kveðja,
Þorri.

Efnisorð:

fimmtudagur, september 24, 2009

Nýr ritstjóri Morgunblaðsins

Merkilegt ef marka má
mikinn fréttakliður,
afturganga upp á rá
á okkur horfir niður.

Kv.
Þorri.

Efnisorð:

fimmtudagur, ágúst 13, 2009

ICESAVE

Ég er að spá í að fara út í sjoppu í kvöld og kaupa mér kók og prins á meðan ég hef ennþá efni á því.
Réttast væri að gefa þessum neföpum í Bretlandi og Hollandi langt nef og hafna þessum samningi. Mér er eiginlega alveg sama þó það gæti haft afdrifariík áhrif á umsókn okkar í Evrópusambandið. Bretar horfa líka örugglega til þess að getað hafið fiskveiðar við Íslandsstrendur að nýju og þá væri þorskastríðið farið út um gluggann. Við eigum bara að borga að hámarki 20.878 evrur fyrir hvern innistæðueigenda, fá lán í dollurum fyrir því hjá Rússum og Kínverjum gegn því að við byggjum upp aðstöðu til umskipunar þegar siglingaleiðin milli Kyrrahafs og Norður-Atlandshafsins opnast í gegnum Norður-Íshafið. Taka upp dollar í stað krónu og sniðganga svo öll bresk vörumerki fyrir utan Liverpool.

Baráttu kveðjur,
Þorri.

Efnisorð:

fimmtudagur, júlí 30, 2009

Maríulax



Um þar síðustu helgi héldum við fjölskyldan upp í sumarbústað að Bergstöðum og áttum náðuga daga eftir flutningana. Þar gerðist það markverðast að Kolbrún Þöll veiddi maríulaxinn sinn í Túngufljóti sem vóg tæp 4 pund. Auk þess fékk hún þessa líka fallegu bleikju sem vóg tæp 5 pund. Þetta gerði hún alveg ein og óstudd. Kastaði, setti í, dróg inn og landaði á spinner spón. Það er reyndar meira afrek að fá svona bleikju í Túngufljóti heldur en lax þar sem þessi bleikjustofn er á undanhaldi eftir að laxaseiðum var sleppt í ána. Hún var mjög glöð með veiðina eins og sjá má.

Kveðja,
Þorri.

Efnisorð:

miðvikudagur, júlí 15, 2009

Lömbin mín

Á ferðum mínum upp og niður Fjarðarheiðina 4-5 sinnum á dag verða á vegi mínum búfénaður sem heldur sig við vegakantinn. Eins og það sé eitthvað bitastæðara þar að finna en fjær veginum. Sauðfé þetta er mér alltaf að verða kunnugara með hverjum deginum sem líður og ekki laust við að maður sé farinn að kunna vel við þessar skepnur, því þær hafa aldrei verið í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér blessaðar rollurnar. En ég sé litlu lömbin vaxa og dafna og verða sífellt sjálfstæðari og ekki laust við að maður sér farinn að fylgjast með vexti þeirra. Sum eru hætt að forða sér sem fætur toga frá veginum er ég kem akandi heldur færa sig makindalega eins og þau séu farin að treysta manni betur.

Það er undarlegt til þess að vita að maður skulu vera meðvitaðari um uppvöxt lambanna á Fjarðarheiðinni en sinna eigin lamba.

Kveðja,
Þorri.

Efnisorð:

miðvikudagur, júní 17, 2009

17. júní 2009

Gleðilega hátíð.
Ég hlustaði á innantóma ræðu Jóhönnu í sjónvarpinu áðan. Alltaf sami söngurinn um rústabjörgun, skjaldborgir og andvaraleysi eftirlitsstofnana. Ég átti nú eiginlega von á háværari mótmælum á þjóðhátíðardaginn eða einhverskonar táknrænum og friðsamlegum mótmælum að þessu tilefni á Austurvelli í dag. Það var aftur á móti sveitungi mágkonu minnar á Álftanesi sem stal senunni í dag er hann jafnaði hús sitt til grunna með gröfu þar sem hann hafði misst það til lánastofnunar sinnar. Í ofánálag gróf hann líka bílinn sinn á lóðinni svona til að fullkomna gjörninginn. Vonandi er þetta ekki það sem koma skal og ekki ætla ég að kvetja til frekari slíkra gjörninga. En á það ber að líta að gjörninsmaðurinn situr nú í haldi lögreglu fyrir eignaspjöll en enginn situr í haldi lögreglu fyrir bankahrunið enn sem komið er tæpum níu mánuðum eftir að bankarnir hrundu.
Hér á Seyðisfirði er nóg af gröfum þessa dagana en ég á síður von á að þær verði notaðar til samskonar viðburða, enda eru Seyfirðingar rólyndis fólk og skynsamt.

Kveðja,
Þorri.

Efnisorð: