fimmtudagur, júlí 30, 2009

Maríulax



Um þar síðustu helgi héldum við fjölskyldan upp í sumarbústað að Bergstöðum og áttum náðuga daga eftir flutningana. Þar gerðist það markverðast að Kolbrún Þöll veiddi maríulaxinn sinn í Túngufljóti sem vóg tæp 4 pund. Auk þess fékk hún þessa líka fallegu bleikju sem vóg tæp 5 pund. Þetta gerði hún alveg ein og óstudd. Kastaði, setti í, dróg inn og landaði á spinner spón. Það er reyndar meira afrek að fá svona bleikju í Túngufljóti heldur en lax þar sem þessi bleikjustofn er á undanhaldi eftir að laxaseiðum var sleppt í ána. Hún var mjög glöð með veiðina eins og sjá má.

Kveðja,
Þorri.

Efnisorð:

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta var auk þess mjög góður lax, sem Kolbrún þöll veiddi. Eg get borið um það því hún var svo örlát að gefa mér hann sem eg borðaði með bestu lyst ásamt Guðrúnu og Áslaugu. Bestu þakkir fyrir, Kolbrún Þöll.

fimmtudagur, júlí 30, 2009 4:19:00 e.h.  
Blogger Unknown said...

Flott mynd af skvísunni :-) alveg yfirkomin af hamingju með aflann.

kv. Elín

fimmtudagur, júlí 30, 2009 11:57:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home