Á morgun er stór dagur hjá fjölskyldunni. Óliver Gísli verður tveggja ára og litla stúlkan okkar fær loksins nafnið sitt. Mikil leynd hvílir yfir nafninu og hafa ættingjar verið að reyna veiða það upp úr Kolbrúnu Þöll. Það hefur ekki gengið eftir enda veit hún ekki nafnið ennþá. Ég sagði henni þó í gríni að hún ætti að heita Ingiríður Ósk. Hún trúði því eins og ekkert væri og fór verulega hjá sér um leið og hún roðnaði og blánaði í framan.
Þetta kemur allt í ljós.
Kveðja,
Þorri.
Efnisorð: Júní 2009
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home