miðvikudagur, apríl 22, 2009

Heimurinn batnandi fer





Síðastliðna nótt, nánar tiltekið kl. 03:52, gerðist sá merkis atburður að okkur fjölskyldunni í Arnarásinum fæddist stúlka. Hún vóg 4245g og mældist 53cm á lengd. Hún var mjög dugleg í fæðingunni og allt gekk að eðlilega fyrir sig. Þess má geta að sömu ljósmæðurnar tóku á móti henni og tóku á móti Óliver Gísla þannig að þetta var allt í öruggum höndum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Við komum svo heim núna eftir kvöldmat og óhætt að segja að sá stutti orðið ansi hissa við að fá þennan óvænta meðlim inn á heimilið. "O-Ó" sagði Óliver Gísli og skríkti. Kolbrún Þöll er himinlifandi yfir að fá stelpu og er afar stolt af systur sinni. Guðnýju heilsast vel en er afar þreytt eftir nánast engan svefn síðasta sólarhringinn.

Bestu kveðjur,
Þorri og co.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home