fimmtudagur, mars 26, 2009

Seyðisfjörður

Þessa vikuna hef ég dvalið á Seyðisfirði við vinnu við Bjólfsvikjun og Gúlsvirkjun. Aldrei komið á Seyðisfjörð áður. Kannski ekki skrítið því þangað er lítið að sækja nema maður hyggist flýja land með Norrænu. Annars er þetta vinalegur bær með góðu fólki. Yfir vetrartímann er þarna lítið við að vera en mér skilst að mikið líf færist í bæinn á sumrin. Gárungarnir segja að þarna hafi engin grillað úti í sól. Þarna sé alltaf þoka. Einn sagði mér frá konu sem bjó þarna í yfir 50 ár sem man eftir því að mökkur frá bræðslunum hafi verið slíkur að ekki hafi sést til sólar allt sumarið. Það var í þá gömlu góðu daga.
Ég mun dvelja á þessum athyglisverða stað næstu vikurnar en koma heim um helgar. Þetta verður bara góð og skemmtileg reynsla.

Kveðja,
Þorri.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home