fimmtudagur, apríl 09, 2009

Sjáfstætt fólk

Undanfarnar vikur og mánuði hef ég, með nokkrum hléum, verið að dunda mér við að lesa Sjálfstætt fólk eftir Halldór Kiljan Laxness. Mér var sagt að þetta væri skyldulesning allra Íslendinga. Ég kláraði þessa miklu bók loks í kvöld. Þetta er afar góð lesning þó svo að mér þyki miðkafli hennar í lengra lagi. Helsta viðfangsefi bókarinnar er sjálfstæði einstaklingsins og hvenig menn öðlast fullkomið sjálfstæði og halda því. Að vera sjálfstæður merkir að vera engum háður, nema kannski sjálfum sér ekki satt? Bjarti var fallvalt í sinni sannfæringu um eigið sjálfstæði. Á endanum var hann undir hælnum á ansi mörgum hvað veraldleg efni varðaði og tilfinningalega háður öðrum án þess kannski að gera sér alltaf grein fyrir því.

Nú er svo komið að sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki einu sinni vera engum háður ef marka má fréttir síðustu daga. Þar hittir skrattinn ömmu sína.

FLokkskveðja,
Þorri.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home