Í páskafríinu hef ég átt náðugar stundir við bókalestur milli þess sem ég hef skeint og skúrað. Ég kláraði
Sjálfstætt fólk eftir
Laxness og svo las ég
Segðu mömmu að mér líði vel eftir
Guðmund Andra Thorsson. Þar er á ferðinni hugljúf skáldsaga sem segir frá ástum og örlögum lítillar fjölskyldu í Reykjavík. Afbragðs góð og fljótlesin bók sem hægt er að mæla með. Ein tilvitnun í hana er afar falleg þar sem sögumaðurinn rifjar upp samskipti sín við föður sinn.
"Hann lyfti mér þegar ég sá ekki, fræddi mig þegar ég vissi ekki, flutti mig þegar ég komst ekki og hjálpaði mér þegar ég gat ekki." (Segðu mömmu að mér líði vel, bls. 139)
Núna er ég að lesa bók eftir
Ólaf Hauk Símonarson sem kom út fyrir síðustu jól og heitir
Fluga á vegg. Þetta er saga sem segir frá uppvaxtarárum höfundar í vesturbæ Reykjavíkur eftir stríðsárin. Þetta er skemmtileg saga sem hefur að geyma margar myndir sem mín kynslóð þekkir ekki, bæði hvað varðar húsakost og aðra ásýnd samfélgsins í Reykjavík í þá daga.
Svo er ferðinni heitið aftur austur á Seyðisfjörð í fyrramálið og færa björg í bú.
Bestu kveðjur,
Þorri.
Efnisorð: Apríl 2009
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home