mánudagur, apríl 20, 2009

Ráðherrastólar

Ég las það á einhverjum netmiðlinum að vinstriflokkarnir séu þegar farnir að skipta með sér ráðherrastólunum. Þess utan eru frekustu þingmennirnir sem ekki fengu stól í þessari ríkisstjórn farnir að míga utan í stólfætur og merkja sér þá. Einn þeirra er Jón Bjarnason búfræðingur og fyrrum bóndi og skólastjóri Bændaskólans á Hólum sem hefur áralanga reynslu af að míga úti. Með fullri virðingu fyrir bændum og sveitaómögum þá er það alveg klárt að hann Jón er enginn bógur í að verða ráðherra. Hvað þá við þær aðstæður sem við búum við núna.
Guð forði okkur frá því. Hann á einungis eftir að míga á sig.

Texti Stuðmannanna Valgeirs og Egils í laginu Út í veður og vind verða bara ljóslifandi.

Ég legg metnað minn í það að míga úti
og í mannskaðanum varð ég undir vegg.
Í Stangarholti kúldrast ég hjá Knúti
og Kristínu, sem spælir okkur egg.

O, ó, út í veður og vind
o, ó..... vatns- ég lita -mynd, undan vindi.

Ég migið hef í mörgu dimmu skoti
og meir´að segja bak við hús hjá þér.
Þótt nýtískuleg salernin ég noti
er nepjan betri til að hægja á sér

O, ó, út í veður og vind
o, ó..... vatns- ég lita -mynd, undan vindi.

Afi kenndi mér sem ungum pilti
aldrei að láta deigan síga
og þegar kuldinn kvikasilfrið tryllti,
hann kenndi mér í lófana að míga.

O, ó, út í veður og vind
o, ó..... vatns- ég lita -mynd, undan vindi.



Bestu kveðjur,
Þorri.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home