Magnús Þór Hafsteinsson fékk þá snilldarhugmynd, eftir að Frjálslyndir í Norðvesturkjördæmi höfðu sent hann út fyrir 200 mílurnar í prófkjörinu, að bjóða sig fram til formanns í flokknum gegn Adda Kidda Gau á landsþingi flokksins. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu og fékk raunar þau skilaboð að hann ætti ekki erindi aftur inn fyrir 2oo mílurnar. Núna segir Magnús að þar sem hann gegni ekki lengur neinum trúnaðarstöðum innan flokksins, lýði honum eins og Davíð Oddsyni er hann hætti í Seðlabankanum, því nú sé hann frjáls og geti nú talað. Spurninginn er þá sú, hver vill hlusta? Lítiðlátur alltaf hann Magnús!
Kveðja,
Þorri.
Efnisorð: Mars 2009
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home