fimmtudagur, apríl 02, 2009

Mættur aftur á Seyðisfjörð

Jæja, þá er maður kominn aftur á Seyðisfjörð. Ferðalagið gékk bara vel, flugið gott og vegurinn yfir Fjarðarheiðina auður. Mér sýnist að hér hafi lítið gerst á meðan ég var í Reykjavík. Bara meiri snjór en þegar ég fór.
Mitt fyrsta verk var að skoða menninguna hér og skellti mér beint á krána og horfði á landsleikinn. Ágætis leikur hjá strákunum og einungis óheppni að fá ekki stig út úr þessum leik. Þorpsbúar voru mér sammála þar.
Datt svo í sófann hér í húsinu og horfði á endursýningu heimildamyndarinnar "Syndir feðranna" sem fjallar um Breiðavíkurdrengina. Hafði reyndar séð hana áður. Mikið lifandis skelfingar sögur þessi menn höfðu að segja. Algjör viðbjóður.
Á morgun hefst svo vinnan aftur og hér verður unnið fram á miðvikudag í næstu viku. Vonandi bíður frúin með að verða léttari þar til ég kem til baka. Hún er reyndar alveg að springa, komin á 39. viku.
Á meðan ég var í þessu stopi í Reykjavík gerðust reyndar þau undur og stórmerki að við Guðný samþykktum kauptilboð í íbúðina. Það er semsagt allt að gerast.

Bestu kveðjur,
Þorri.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home