Á hverfandi hveli
Ég horfði á Eurovision "gay pride" song contest í kvöld með öðru auganu. Ég vona bara að við vinnum þessa keppni ekki núna í kreppunni. Það gæti riðið ríkissjóði að fullu og við orðið endanlega gjaldþrota vegna kostnaðar við keppnishald. Samt gæti það verið svolítið tímans tákn á Íslandi að halda keppnina í ófullgerðu Tónlistarhúsi skreyttu byggingakrönum og grárri steinsteypu.
Það fór eins og ég óttaðist að Jón Bjarnason, græningi og búfræðingur, yrði ráðherra. Er þetta hið nýja Ísland sem alltaf er verið að tala um? Maðurinn er fæddur í lok seinni heimsstyrjandarinnar og áður en við fengum lýðveldi. Þar fyrir utan er maðurinn það langt til vinstri og mikill afturhaldssinni að mann setur hljóðan við að heyra hann tala. Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra skal hann heita. Þar fór góður biti í hundskjaft.
Annara er allt gott að frétta og nýjar myndir af sístækkandi fjölskyldunni komnar í albúmið.
Kveðja,
Þorri.
Efnisorð: Maí 2009
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home