miðvikudagur, maí 27, 2009

xD áttræðir

Í Fréttablaðinu á mánudaginn sl. var heilsíðu auglýsing frá Sjálfstæðisflokknum vegna áttræðis afmælis hans. Í henni stendur, með leyfi Forseta:

"Í dag eru 80 ár frá stofnun Sjálfstæðisflokksins. Allar götur
síðan hefur Sjálfstæðisflokkurinn staðið vörð um hagsmuni
Íslendinga á grundvelli einstaklings- og atvinnufrelsis."


Einhvernvegin finnst mér að Sjallarnir hafi sofnað á þessum verði á meðan nýfrjálshyggjan tröllreið samfélaginu án verja og sleipiefnis. Afleiðingin er einhver mesti ómagi frá því land byggðist.

Til lukku með afmælið Sjálfstæðismenn.

Með kaldri kveðju,

Þorri.

Efnisorð:

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er nokkuð vel að orði komist! Ég segi nú ekki meira. Kveðjur frá gömlu konunni

fimmtudagur, maí 28, 2009 9:22:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home