föstudagur, desember 26, 2008

Jólakveðja 2008


Hugrenningar helgra jóla,
hughreystir lönd og lýð.
Á almættið þarf að stóla,
á guðspjallið ég hlýð.

Í myrkrinu markar fyrir
Meistarans bjarta ljósi.
Í hjartað hleypið innfyrir
hátíðanna kærleiksljósi.

Frelsarinn fékk heiðurssess,
fyrir það skal þakka.
Minnast skal merkingu þess
er mundum við jólapakka.

Styrkið stoðir fjölskyldubanda,
sannra vina og barna skjól.
Kærar kveðjur til ykkar handa,
kærleik og gleðileg jól.
(ÞÓ 2008)


Guðný, Þorri, Kolbrún Þöll,
Óliver Gísli, „Bumbus“ og Bimbi

Efnisorð:

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Bestu þakkir fyrir þessa fallegu jólakveðju, þín mamma

laugardagur, desember 27, 2008 9:06:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þessi mynd er svo mikið æði af þeim og þú ert nú bara stórskáld Þorri minn :-)

kv. Elín

mánudagur, janúar 26, 2009 10:01:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home