Í einföldustu mynd lítur brottrekstur Seðlabankastjóranna svona út. Segjum sem svo að við séum stödd á kappleik í tuðrusparki. Leikurinn er á milli Krónunnar og Evrunnar. Krónan hefur verið í verulegu basli allt tímabilið og sér fram á fallbaráttu enda tapað stórt fyrir Dollaranum, Jeninu, norskum og dönsku Krónum svo ekki sé talað um leikinn gegn svissneska Frankanum. Stjórnarskipti hafa nýlega orðið í hluta stjórnar knattspyrnudeildar Krónunnar vegna óeiningar um framtíðarstefnu liðsins, markmið og stuðnings við þjálfarann. Nýja stjórnin ræður nýjan þjálfara sökum linkindar þess sem fyrir var og sérmeðferðar valinkunnra eldri leikmanna og persónulegs vinskapar þeirra hann. Nýji þjálfarinn fær fullt umboð stjórnar knattspyrnudeildarinnar, eins og von er, til að gera þær umbætur sem hann telur nauðsylegar til að bjarga liðinu frá skömm. Þrálát óánægja hefur verið með leik nokkurra lykilmanna í vörn Krónunnar meðal aðdáenda liðsins fyrir slakan varnarleik og sjálfsmörk á tímabilinu. Nýji þjálfarinn kemur strax auga á þennan vanda og gerir þrjár skiptingar eftir 7 mínútna leik í fyrri hálfleik í sínum fyrsta leik með liðið í stöðunni 0-3 á heimavelli og tekur umrædda leikmenn af velli. Enda voru áhangendur liðsins farnir að púa á þá og hlæja að getuleysi þeirra með tuðruna og varnartilburði. Hægri- og vinstri bakverðirnir líta hvor á annan og ráðfæra sig lítillega við miðvörðinn sem jafnframt er fyrirliði liðs Krónunnar. Eftir stutt samtal þeirra á milli gengur vinstri bakvörðurinn af velli en fyrirliðinn og hægri bakvörðurinn neita að fara af velli strax og vill halda leik áfram og endurskoða stöðuna í hálfleik. Fyriliðinn hafði nefnilega ekki vanist því að sér væri sagt fyrir verkum og alla tíð sjálfur stjórnað því sem hann vildi. Hann hafði sjálfur verið þjálfari liðsins í ein 13 ár er hann fékk þá snildar hugmynd að gerast leikmaður liðsins og fyrirliði án þess að hafa nokkurn tímann spilað kappleik. Nokkur ókyrrð kemur í þjálfarann vegna þessa enda aldrei orðið vitni að neinu þessu líkt. Stuðnigsmenn beggja liða bæði hlæja og fara með fúkyrði um þennan fúla fyrirliða. Blaðamenn í stúkunni, innlendir sem erlendir, klóra sér í hausnum en eru strax komir með fyrirsögnina á grein sína um leikinn. Stjórnin gengur til fundar og gerir drög að starfslokasamningi við fyrirliðann og gefa honum færi á að fara á frjálsri sölu frá félaginu, enda á allra vitorði að ekki fáist neitt fyrir hann auk þess sem þeir sjá ekki fram á að það verði mikil eftirspurn eftir leikmanni sem hagar sér svona nema kannski í utandeildinni.
Gæti þetta gerst í nútíma fótbolta? Nei ég held ekki. En ef svo væri myndi maður álykta sem svo að fyrirliðinn teldi sig stærri en knattspyrnufélagið og það kann ekki góðri lukku að stýra.
Sjáfur var ég á sínum tíma bæði miðvörður og fyrirliði og lenti í þeirri stöðu að verið skipt af velli fyrir slæga frammistöðu. Maður vissi bara upp á sig sökina og gekk af velli með nagandi samviskubit fyrir að hafa brugðist félaginu í það skiptið. Enn hagsmunir félagsins gengu alltaf fyrir. Síðast mínir hagsmunir.
Kveðja,
Þorri.
Efnisorð: Febrúar 2009
1 Comments:
Hefurðu ekki fengið neitt comment fyrir þennan sniðuga og fína pistil enn? GT í Skógum vinkona mín vill að þú sendir hann til einhvers blaðsins og hún veit alveg hvað hún syngur, konan sú.Ég get bætt við að þú ókst stundum hratt í hlað eftir leiki en sagðir fátt. Þá hefurðu líklega verið búinn að missa fyrirliðabandið.Þetta sé alltsaman betur núna. KVEÐJA Mamma
Skrifa ummæli
<< Home