
Kolbrún Þöll keppti á Íslandsmóti unglinga í Hópfimleikum á laugardaginn. Hún keppti í 4. flokki sem eru 12-14 ára stúlkur. Þeim gekk bara svakalega vel og lentu í 3. sæti sem er bara nokkuð vel af sér vikið þar sem þrjár þeirra eru bara 9-10 ára og æfa í 5. flokki. Þær voru svakalega montnar eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Bestu kveðjur,
Þorri og co.
Efnisorð: Febrúar 2009
1 Comments:
Til hamingju Kolbrún Þöll og allir á heimilinu. Pabbi þinn hafði líka mikið keppnisskap á þínum aldri og hefur enn, en það er ekki alltaf auðvelt þegar illa gengur, sem stundum kemur fyrir í öllum íþróttum. Haltu ótrauð áfram. Áfram Stjarnan! (Stjarnan er líklega 10. félagið sem ég hef haldið með gegnum tíðina) Kær kveðja, Amma grey
Skrifa ummæli
<< Home