miðvikudagur, janúar 28, 2009

Seðlabankastjórar

Nú er talað um að það kunni að vera ríkinu dýrt að reka Seðlabankastjórana - hið minnsta 200 kúlur. Og hvað með það? Hvað ætli það kosti þjóðarbúið að hafa þessa valdhroka áfram í Seðlabankanum? Ekki ríkir nú mikið traust til þeirra meðal erlendra fjárfesta og á meðan svo er er ekki von á miklum erlendum fjárfestingum í landinu. Bara við það að reka þá mun krónan án vafa styrkjast til muna. Burt með þá!

Kveðja,

Þorri.

Efnisorð:

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home