þriðjudagur, mars 10, 2009

Liverpool vs. Real Madrid


Heil og sæl.

Í kvöld fer fram æsispennandi leikur á Anfield Road í Liverpool í Meistaradeild Evrópu. Liverpool tekur þá á móti spænskum tuðruspörkurum í Real Madrid. Fyrri leikurinn fór fram fyrir hálfum mánuði og lyktaði með 0 - 1 sigri Bítladrengjanna frá Liverpool. Ef að líkum lætur þá verður þetta svakalegur leikur enda sæti í átta liða úrslitum í húfi. Ég giska á 1-1 jafntefli og Poolarar fara því áfram. Leikurinn hefst 19:30 og ég verð að heiman í kvöld enda fyrir löngu misst allt húsbóndavald á mínu heimili og fæ ekki að horfa á boltann innan veggja heimilisins.


Baráttu kveðjur,

Þorri.


Efnisorð:

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með þína menn á vellinum í gær. Mamma

miðvikudagur, mars 11, 2009 1:02:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home