Stuðningsmenn Ólafs í Mörk óku hratt með atvkæðin aftan á vörubílspalli og flautuðu á þá, sem illa voru ríðandi.
mánudagur, febrúar 04, 2008
Sausa á afmæli í dag
Systir mín hún Auður á afmæli í dag. Hún er 10 árum eldri en ég en er reyndar svo heppin að vera haldin sama hvilla og ég sjálfur sem byrtist í því að líta út fyrir að vera amk. 10 árum yngri.
Ég óska þér innilega til hamingju með daginn Sausa.
Þorri er fæddur í Reykjavík á þorranum árið 1972 en á ættir sínar að rekja undir Eyjafjöll. Þorri er yngstur barna hjónanna Áslaugar Ólafsdóttur frá Stóru-Mörk og Ólafs Auðunssonar fá Ysta-Skála. Systkini Þorra eru Guðrún, Auður og Ólafur Haukur. Olafssonbrother er skírskotun til hins frábæra fjöllistahóps "The Olafssonbroters" sem þeir bræður skipa en hafa þó ekki komið saman enn sem komið er.
Þorri er giftur Guðnýju Gísladóttur og eiga þau þrjú börn, dóttur sem heitir Kolbrún Þöll, soninn Óliver Gísla og Þorkötlu Eik. Svo á Kolbrún Þöll heimilisköttinn Bimba. Fjölskyldan býr í Garðabæ en þangað á Guðný rætur sínar að rekja því faðir Guðnýjar, Gísli Vilmundarson, var uppalinn í Króki í Garðaholti. Móðir Guðnýjar er Sigríður Stefánsdóttir hin síunga.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home