Að tárast tvisvar sama daginn
Svo gerðist það aftur í gærkveldi að ég táraðist í bíó. Þannig var að ég og Kolbrún Þöll fórum saman á frumsýningu heimildamyndarinnar Sólskinsdrengur. Myndin fjallar um einhverfan strák sem heitir Keli og fjölskyldu hans og hvernig þau leita sér hjálpar við að skilja betur þessa fötlun og leiðir til að geta átt frekari tjáskipti. Keli var reyndar með Kolbrúnu Þöll í Barnaskólanum þannig að hún þekkir til hans. Myndin er í senn hlægileg og gleðileg en umfram allt afar fróðleg og mjög góð. Það var einmitt á gleðilegum augnablikum myndarinnar sem ég átti erfitt með tilfinningar mínar. Það átti reyndar við um dóttir mína líka, hún gáði alltaf hvort mér vöknaði um augun líkt og sér.
Pabbar geta líka grátið.
Kveðja,
Þorri.
Efnisorð: Janúar 2009
1 Comments:
Flottuf pistill hjá þér, Þorri minn. Mamma
Skrifa ummæli
<< Home