Stuðningsmenn Ólafs í Mörk óku hratt með atvkæðin aftan á vörubílspalli og flautuðu á þá, sem illa voru ríðandi.
föstudagur, mars 14, 2008
Liverpool
Þá er það ljóst að baráttan um Bretland fer fram í átta liða úrslitum í Meistaradeildinni. Liverpool - Arsenal mætast og það verður veisla. Ég hef engar áhyggjur af þessu á meðan Liverpool getur teflt fram þessum kappa......TORRES!!!! Ástæðuna má sjá með því að smella hér. Loksins eigum við alvöru mann í treyju nr. 9.
Þorri er fæddur í Reykjavík á þorranum árið 1972 en á ættir sínar að rekja undir Eyjafjöll. Þorri er yngstur barna hjónanna Áslaugar Ólafsdóttur frá Stóru-Mörk og Ólafs Auðunssonar fá Ysta-Skála. Systkini Þorra eru Guðrún, Auður og Ólafur Haukur. Olafssonbrother er skírskotun til hins frábæra fjöllistahóps "The Olafssonbroters" sem þeir bræður skipa en hafa þó ekki komið saman enn sem komið er.
Þorri er giftur Guðnýju Gísladóttur og eiga þau þrjú börn, dóttur sem heitir Kolbrún Þöll, soninn Óliver Gísla og Þorkötlu Eik. Svo á Kolbrún Þöll heimilisköttinn Bimba. Fjölskyldan býr í Garðabæ en þangað á Guðný rætur sínar að rekja því faðir Guðnýjar, Gísli Vilmundarson, var uppalinn í Króki í Garðaholti. Móðir Guðnýjar er Sigríður Stefánsdóttir hin síunga.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home